Hugmyndafræði Stúdíó Jæja
Stærsta markmið Stúdíó Jæja er skapa staði þar sem fólki líður vel; staðir sem geta hreyft við ímyndunarafli fólks og jafnvel ýtt undir leik, hvort sem við erum börn, fullorðin eða gamalmenni. Allar okkar daglegu aðstæður eiga skilið góðan arkitektúr; vandaða hugsun og fallegan frágang, því menning felst í að gera hlutina vel.
Skemmtilegt ferli skapar góðan arkitektúr
Jákvætt og opið hugfar er leiðarljós í allri vinnu Stúdíó Jæja; að leyfa sér að hafa gaman við að spá og spekúlera, hvaðan hugmyndir eru að koma og hvert þær eru að fara.
Með þetta hugarfar að leiðarljósi greinum við kjarna hvers verkefnis; þarfirnar sem þarf að uppfylla, staðinn sem umlykur verkefnið og hið menningarlega samhengi sem liggur að baki.
Þegar verkefni eru þróuð áfram leiðum við saman skapandi hugsun og hagkvæma nálgun, fagurfræðilega heild og tæknilegar útfærslur. Þessi samhljómur ólíkra þátta er eitt áhugaverðasta viðfangsefni arkitektúrs og undirstaða þess að skapa góða og örvandi staði fyrir okkur öll.
Um Stúdíó Jæja
Bjarki Gunnar Halldórsson, arkitekt og kennari, er eigandi Stúdíó Jæja. Bjarki stofnaði stofuna ásamt Hildi Gunnlaugsdóttur árið 2023 og var Hildur hluti af stofunni til ársins 2025.
Bjarki Gunnar er löggiltur mannvirkjahönnuður, skipulagsráðgjafi og aðjúnkt á arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Hann lauk meistaragráðu í arkitektúr frá Arkitektskolen Aarhus árið 2008 og hefur síðan þá starfað á arkitektastofum í London og í Reykjavík. Bjarki hefur komið að fjölbreytilegri flóru verkefna á sviði mannvirkja og skipulags en jafnframt sinnt ritstjórnarstöfum og greinarskrifum ásamt verkefnum á sviði þátttökulýðræðis, sýningarstjórnunar og kennslu.