Vesturhlíð
Deiliskipulag og hönnun frístundahúsa
Vesturhlíð er staðsett í fallegri náttúru, rétt sunnan við Úlfljóstsvatn, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Stúdíó Jæja var falið að deiliskipuleggja þetta svæði sem frístundahúsabyggð og er þar gert ráð fyrir 95 frístundahúsalóðum sem njóta góðs útsýnis, í fallegri náttúru.
Um leið var stofunni falið að hanna frístundahús sem væru hægt að reisa á skömmum tíma með hagkvæmum hætti. Við hönnun er lögð rík áhersla á að skapa reisulegt hús sem fellur um leið vel að staðháttum með hlýlegri timburklæðningu. Viss einfaldleiki einkennir innra skipulag en húsinu er skipt upp í tvær álmur; hljóðlát svefnálma og íveruálma með eldhúsi og baðherbergi sem snýr út að gangi, í átt að svefnálmu. Út frá ganginum er aðkomuleið að skjólgóðu útisvæði til suðvesturs þar sem koma má fyrir heitum potti. Að innan er lögð áhersla á hlýleika í efnisvali með gluggum sem ramma inn útsýni með áhrifaríkum hætti.
Verkefnið er unnið fyrir Vesturhlíðarbyggð ehf. frá árinu 2024 og er enn í vinnslu. Deiliskipulagsferli er lokið og nýlega var opnuð sölusíða sem varpar nánara ljósi á verkefnið og þeim möguleikum sem eru í boði við kaup á landi. Sjá nánar á Vesturhlíðarbyggd.is.