Umhverfishönnun, þátttökulýðræði og deiliskipulag

Kirkjubraut

Markmið verkefnisins var að skoða hvernig mætti efla fjölbreyttari ferðamáta við Kirkjubraut og Kalmansbraut á Akranesi. Um leið átti að varpa fram hugmyndum um hvernig mætti styrkja almenningsrými svæðisins til að efla mannlíf og fegra umhverfið.

Útgangspunktur verkefnisins var götusnið í anda bæjargötu þar sem gert var ráð fyrir einfaldri, tvístefnuakrein fyrir miðju með samsíða bílastæðum, ásamt gróðurbeðum með blágrænum ofanvatnslausnum og hjóla- og göngustígum beggja megin götunnar.

Til að efla almenningsrými götunnar og á nálægum svæðum var skipulögð vinnustofa með íbúum bæjarins í maí 2025. Á vinnustofunni stóð Stúdíó Jæja fyrir fræðslu um arkitektúr, almenningsrými og sögu bæjarins eins og hún birtist í umhverfinu. Í kjölfarið gafst íbúum kostur á að myndgera hugmyndir sýnar á teikningar af nokkrum stöðum svæðisins.

Í kjölfarið vann Stúdíó Jæja úr hugmyndum íbúa og mótuðu þær inn í verkefnið. Þar var lögð fram n.k. verkfærakista til að efla samveru íbúa á öllum aldri. Jafnframt var lagt til að gefa steinsteyptum flötum götunnar sem mun þurfa að farga nýtt líf í umhverfismótun almenningsrýmisins. Slíkt styrkir sögulega vídd verkefnisins auk þess sem endurnotkun efna felur í sér lægra kolefnisspor.

Verkefnið er unnið fyrir Akraneskaupstað frá árinu 2024 og er enn í vinnslu en deiliskipulagsferli er að ljúka um þessar mundir. Umferðarráðgjöf er í höndum verkfræðistofunnar Eflu.

Að neðan má sjá verkfærakistu fyrir almenningsrými við götuna sem skilgreind voru út frá hugmyndum íbúa (teikningar hér að ofan).

Verkfærakista

Að neðan má sjá hvernig hægt sé að endurnota steypta fleti í þá umhverfismótun sem framundan er á svæðinu.

Next
Next

Vesturhlíð